Fyrr í vikunni frumflutti Kanye West nýtt lag þar sem hann sjálfur, Rihanna og Paul McCartney samnýta krafta sína á hátíð sem ber nafnið iHeartMedia Music Summit Lagið sem ber nafnið FourFiveSeconds fékk strax mjög góða dóma en á laugardaginn gerði Rihanna okkur öllum greiða og setti lagið á netið.
Gleðin stóð þó ekki lengi yfir á YouTube, þar sem laginu var fyrst deilt – þar sem myndbandið hefur nú verið tekið út sökum brotar á höfundarréttalögum – en Rihanna svíkur ekki aðdáendur sína frekar en fyrri daginn og vísar á iTunes, þar sem hægt er að hlusta á þau Kanye og Paul McCartney taka þríleik saman.
Hér má svo hlusta á brot úr sjálfu laginu, en lagið kostar litlar 160 íslenskar krónur á iTunes – rennið músarbendlinum yfir og smellið á litla hátalarann í hægra horninu til að hlusta á hljóðbrotið!
Tengdar greinar:
Eru Rihanna og Leonardo DiCaprio ástfangin á laun?
Rihanna ögraði heiminum árið 2014
Nýjasta myndband Paul McCartney með hjálp nokkurra vina
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.