Michelle Rodriquez hefur staðfest að hún og súpermódelið Cara Delevingne eru par. Fólk í kringum þær hefur velt því fyrir sér hvort það gæti verið eitthvað meira en bara vinskapur á milli þeirra tveggja. Nú hefur Michelle, sem við þekkjum flest, fyrir leik sinn í Avatar og Fast & the Furious myndunum staðfest að hún Cara séu saman. Cara Delevingne sem átti sviðið á Tískuvikunni í London fyrir haustlínu Burberry er 14 árum yngri en Michelle og láta þær stöllur aldursmuninn ekkert á sig fá.