Stórglæsilegir tónleikar voru haldnir á Vífilstaðatúni í Garðabæ í kvöld þar sem Of Monsters and Men, Mugison, Moses Hightower og Hide Your Kids voru að spila. Mikill viðbúnaður var á svæðinu og sumar götur í kring lokaðar. Aðalbílastæði tónleikanna var á Kauptúnssvæðinu í Garðabæ og einnig var boðið upp á fríar ferðir með strætó að tónleikasvæðinu frá Mjóddinni, Ásgarði og einnig frá Kauptúnssvæðinu.
Tónleikarnir voru vel sóttir og allir virtust skemmta sér konunglega.