Í síðustu viku fór internetið nánast á hliðina þegar ,,ófótósjoppaðar” myndir af Cindy Crawford voru birtar. Nú verður mögulega það sama uppi á tengingnum.
Beyoncé, sem við allar þekkjum og margar hverjar elskum, tók þátt í auglýsingaherferð fyrir L´Oreal árið 2013 og nú hefur hinum raunverulegu myndum verið lekið á netið – þessum sem ekkert hefur verið átt við.
Hérna má svo sjá auglýsinguna:
Queen B er alltaf gullfalleg. Myndvinnsluforrit eður ei.
Tengdar greinar:
Beyoncé (14) með vafasama hárgreiðslu í hlutverki bakraddasöngkonu
Beyoncé segir frá öllu í stuttmyndinni Yours and Mine
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.