Í kvöld var haldið veglegt opnunarteiti í Joe & the Juice í Kringlunni. Margt var um manninn og augljóst að fólk var spennt fyrir opnun staðarins og því sem hann hefur upp á að bjóða.
Joe & the Juice á rætur sínar að rekja til Kaupmannahafnar þar sem fyrsti staðurinn var opnaður árið 2002. Nú eru alls um 50 staðir í rekstri sem starfræktir eru í 5 löndum.
Á Joe fást t.d. hollir og ferskir ávaxtadrykkir, bragðgóðar samlokur og kaffi, allt á frábæru verði.
Þetta er í raun kaffihús sem leggur ríka áherslu á hollustu og líflegt andrúmsloft og kærkomin viðbót við matsölustaðina sem eru nú þegar til staðar í Kringlunni.