Inbrotssþjófur braust inn á heimili ofurmódelsins Mirranda Kerr (33). Til átaka komst og stakk þrjóturinn vörðinn í augan, en átökin enduðu ekki þar, því að vörðurinn endaði með því að skjóta manninn, meðal annars í höfuðið.
Sjá einnig: Miranda Kerr trúlofuð
Maðurinn klifraði yfir öryggishliðið um helgina, en Mirranda var sem betur fer ekki heima við þegar árásin átti sér stað. Árásarmaðurinn var ferjaður af staðnum í sjúkrabíl, eftir að hafa hlotið 4 skotsár, en sást til öryggisvarðarins ganga óstuddur úr þyrlu lögreglunnar. Hvorugur mannanna var með lífshættuleg meiðsl.
Miranda keyptir eignina ári 2014 eftir að hún skildi við Orlando Bloom, en hún hefur nýverið búið heima hjá unnusta sínum, Evan Spiegel, sem er forstjóri Snap Chat.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.