Þessi ó svo ljúffenga ostakaka er fengin af blogginu hennar Tinnu Bjargar. Nóa kropp og ostakaka saman í skál – almáttugur, ef það er eitthvað sem fær hjarta mitt til þess að syngja.
Ég hvet ykkur enn og aftur til þess að fylgja Tinnu Björg á Facebook – uppskriftirnar hennar eru eitthvað sem enginn á að láta framhjá sér fara. Bara aldrei nokkurn tímann.
Ostakaka með Nóa kroppi og hindberjasósu
250 g Nóa kropp
6 dl þeyttur rjómi
300 g rjómaostur
180 gr flórsykur
1 og 1/2 tsk vanilludropar
400 gr frosin hindber
2-3 msk hrásykur
- Setjið Nóa kropp í eldfast mót eða annað fat og kremjið kúlurnar gróflega með flötum botni á glerglasi.
- Hrærið rjómaost, flórsykur og vanilludropa saman í skál og blandið þeyttum rjóma vel og vandlega saman við.
- Smyrjið ostablöndunni jafnt yfir Nóa kroppið og kælið.
-
Afþíðið hindber í örbylgjuofni til þess að flýta fyrir og sjóðið í potti ásamt hrásykri.Látið krauma við vægan hita í 5 mínútur.
- Sigtið sósuna á meðan hún er heit og kælið.
- Hellið hindberjasósunni yfir ostakökuna og smyrjið henni jafnt á með skeið.
- Kakan er best þegar hún hefur fengið að dvelja í frysti í 3-4 klukkustundir.
Ostakökuunnendur mega alls ekki láta þessa framhjá sér fara! Virkilega gómsæt, einföld og fljótleg.
Tengdar greinar:
Fáránlega auðveld Nutella-ostakaka
Mars twix ostakaka með karmellusósu – Uppskrift
Brúnku-ostakaka með Dumle karamellukremi – Uppskrift
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.