Þetta er ótrúlega fallegt; parið sem hér dansar heitir Phillip Chbeeb og Renee Kester og eru hreint út sagt dáleiðandi flínk í þessari ótrúlegu senu sem er tekin upp á fámennri lestarstöð, en tónlistin sem leikur undir er lagið SLIP eftir Elliot Moss.
Fáránlega fallegt!
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.