Staðan okkar er því mjög slæm og erfið fyrir börnin min sem þola mjög illa breytingar og hvað þá þegar við erum flakkandi milli vina og ættingja til þess að geta sofið. Við styttum okkar dægradvöl með að taka bíltúra og fara í sund og á staði þar sem þau þurfa að fá sína útrás. Þessi börn þurfa sérstaklega mikla hreyfingu.
… ég taldi okkur vera í öruggu húsnæði og minnsta rótið yrðu á börnunum að fá að vera áfram í sínu hverfi og með vinum.
Í lok mars fékk ég viðtalstíma hjá henni og mér var sagt á þeim fundi með henni að það væri allur apríl og mai mánuður eftir svo ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur og eg fengi íbúð sem hentar okkur. Ég fór út frá henni með það í huga, jæja okkar húsnæðisvandi verður leystur og við fáum varanlegt húsnæði sem hentar okkar fjölskyldustærð. Tíminn leið og ekkert gerðist.… þetta var um miðjan mars þegar ég fékk að vita það með mjög stuttum fyrirvara að ég fengi ekki að leigja áfram
mína gömlu eign og þyrfti að fara úr henni 31,mai sem ég og gerði. Ég sendi nokkrum aðilum afrit af þessu bréfi; Réttagæslumann fatlaðra, Sjónarhóli, Fagteymi Bugl, Öryrkjabandalaginu ofl.
Ég marg ítrekaði við minn félagsfulltrúa að þörfin væri á 6.herb húsnæði fyrir okkur, fyrst var mér alltaf sagt að hún vissi ekki að það hefði komið inn 6.herb húsnæði inn á borð til hennar þessi 3.ar sem hún hefur unnið hja Félagsþjónustunni.
… við neituðum í samræmi við fagteymi elsta drengsins míns, þar sem var búið að kasta drengnum fram og tilbaka í skólaúrræði þar sem hann var í mjög erfiðu greiningarferli og drengurinn minn hefði ekki þolað fleiri breytingar á þessum tíma, hann var búin að vera í fjórum skólum a fjórum máuðum.
Ekkert af þessu hefur gengið eftir og nú er ég búin að vera á götunni með börnin og algjörlega upp á náð og miskunn vina og ættingja með nótt og nótt til skiptis.
Mér stóð til boða 4.herb íbúð á Lauganesvegi við Sæbraut rétt fyrir kosningar. Að athugu máli var sú íbúð í samræmi við allt það áður sem mér var boðið óbarnvænt. Í dag þegar ég ber mig eftir lausn á mínum málum er mér tjáð að úthlutnarteymi félagsþjónustunnar er í sumarfríi fram í ágúst og eina sem þau koma með á móts við mig er að börnin séu vistuð á vegum barnaverndar eða við leigjum okkur herbergi á gistiheimili.
Stöðuuppfærslu Katrínar, sem deildi í von um hjálp á Facebook fyrr í kvöld má lesa í heild hér:
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.