Það hafa verið orðrómar um að rokkparið Ozzy Osbourne og Sharon kona hans séu á leið að skilja. Nú hefur það komið fram í slúðurfréttum erlendis að þau séu skilin.
Fréttir herma að þau búi ekki saman lengur vegna skilnaðarins. Parið hefur verið saman í 31 ár og það verður að teljast met í Hollywood árum. Sharon gistir víst á hóteli í Beverly Hills meðan Ozzy hefur það gott á heimili þeirra.
Við munum mörg eftir þáttunum sem sýndi fjölskyldulíf þeirra og barna þeirra tveggja hér á árum áður, þar sáum við ýmislegt skrautlegt eiga sér stað en alltaf virtust þau hjónin ástfangin og trú hvoru öðru. Nú hinsvegar virðist sú hamingja hafa tekið enda.