Paris Hilton upplýsti á þriðjudag að hún og eiginmaður hennar Carter Reum hefðu tekið á móti fyrsta barni sínu saman með aðstoð staðgöngumóður. Hún birti sæta mynd á Instagram þar sem hún hélt í hönd sonars síns og skrifaði: „Þú ert nú þegar elskaður meira en orð fá lýst💙. Hin 41 árs gamla Hilton, staðfesti einnig fréttirnar við People og sagði: „Það hefur alltaf verið draumur minn að verða móðir og ég er svo ánægð að ég og Carter fundum hvort annað. Við erum svo spennt að stofna fjölskyldu okkar saman og hjörtu okkar eru að springa af ást til drengsins okkar.“
Hin 41 árs Hilton og hinn 41 árs Reum gengu í það heilaga í nóvember 2021, en frá því að samband þeirra hófst árið 2019 hafa þau verið opin með það að þau dreymi um að eignast saman börn.
Hilton greindi frá því í lok 2021 að þau hjónin hafi hafið glasameðferð í þeirri von að eignast tvíbura, dreng og stúlku. Hún sagði þá að raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hafi sagt henni frá þeim möguleika að eignast barn með aðstoð staðgöngumóður, en Kardashian eignaðist fyrstu tvö börn sín með þeim hætti.