Þessi hátíðlega og fallega kaka er frá Gotterí og gersemum
Eftir nethangs og myndaskoðun af fallegum skreytingum datt ég inn á kökublogg með þessari hugmynd og hreinlega gat ekki setið á mér að prófa eitthvað svipað. Hugmyndin kemur frá The Cake Blog og var þetta alls ekki eins flókið og það lítur út fyrir að vera svo lengi sem þolinmæðin er við hönd. Hér hafið þið því fallega gula páskaköku sem ég mæli með þið prófið um helgina!
Kaka
- 2 x Betty Crocker kökumix
- 100 gr suðusúkkulaði
- 1 pk Royal súkkulaðbúðingur
Hrærið kökumixið samkvæmt leiðbeiningum á pakka og bætið bræddu suðusúkkulaðinu ásamt búðingsduftinu út í rétt í lokin og blandið varlega saman við. Bakið samkvæmt leiðbeiningum. Bakið í 4 20cm formum. Reyndar nota ég aðeins 3 botna í þessa köku svo þið getið gert 1 ½ uppskrift eða leyft fjölskyldumeðlimum að stelast í aukabotninn á meðan hann er volgur. Þegar botnarnir eru kaldir er hver um sig tekinn í tvennt með kökuskera svo þið endið með 6 x þynnri botna.
Krem á milli laga
- 2 x Betty Crocker Coffee icing
- 4 msk bökunarkakó
- 1/3 pk flórsykur
- 4-5 msk vatn
Hrærið öllu saman í hrærivélarskálinni og smyrjið á milli laga (ekki á efsta botninn samt, á hann fer gult smjörkrem).
Krem utan á köku
- 125 gr smjör (mjúkt)
- 500gr flórsykur
- 1 eggjahvíta
- 2 tsk vanilludropar
- Gulur matarlitur
- 4-5 msk vatn
- Setjið öll hráefnin nema flórsykur í hrærivélarskálina og hrærið vel saman. Blandið flórsykri saman og bætið varlega út í blönduna, skafið niður á milli og hrærið þar til kremið er slétt og fellt.
- Smyrjið fyrst örþunnu lagi af kremi á alla kökuna til að grunna og binda alla kökumylsnu og leyfið að “storkna”.
- Smyrjið næst þykkara lagi af gulu kremi yfir grunnlagið og sléttið eftir fremsta megni. Gott er að bleyta kökuspaðann í heitu vatni á milli þess sem þið sléttið kremið, með því móti verður það sléttara en ella.
- Kælið og útbúið á meðan Ganache og súkkulaðiskraut.
Ganache
- 200 gr suðusúkkulaði
- 150 ml rjómi
- 1 tsk corn sýróp
Saxið suðusúkkulaðið. Hitið rjómann að suðu og hellið yfir súkkulaðið, leyfið að standa í um 5 mínútur. Hrærið saman blöndunni og bætið sýrópinu saman við. Gott er að taka með skeið/setja á brúsa hluta af súkkulaðiblöndunni og hella fram af brúnunum til að leki niður. Smyrjið síðan góðu lagi yfir toppinn og jafnið út.
Skraut og samsetning
- 100 gr súkkulaðihjúpur
- Kökuskreytingarduft/matarlitir í duftformi.
- 2-3 pokar Cadbury‘s súkkulaðiegg
Bræðið súkkulaðihjúpinn, hellið á bökunarpappír á bakka. Dreifið úr með kökuspaða, stráið smá kökuskreytingardufti yfir áður en storkar og kælið (ég notaði gult, bleikt og smá hvítt). Brjótið svo í hæfilega stóra bita þegar storknað og stingið í kökuna, bæði á toppinn og hliðina (þegar búið er að hella Ganache á).
Smá af súkkulaðinu setti ég á kökudiskinn til að festa eggin sem þar liggja en annars megið þið setja egg í hrúgu á miðjuna á kökunni og niðri við annan kantinn.
Falleg er hún
Endilega smellið á like á Facebook síðu
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.