Pasta Carbonara – Uppskrift

Pasta Carbonara

120 gr beikon
1 msk ólífuolía
400 gr spaghetti
Salt
4 eggjarauður
2 msk léttrjómi
1/4 glas af parmesan
Pipar

Aðferð: 

Skerið beikonið i ræmur og steikið það þangað til fitan bráðnar í ólífuolíunni, taka svo pönnuna af hellunni. Haldið beikoninu samt heitu.
Sjóðið spaghettíið í léttsöltu vatni.
Hrærið eggjarauðurnar saman í skál og blandið rjómanum saman við, ásamt helmingnum af parmesanostinum og piparnum.
Kveikið á pönnunni med beikoninu og henda spaghettíinu í. Hrærið í smá tíma og setjið svo spaghettíið með beikoninu í skálina med eggjablöndunni.
Berið fram med parmesanosti og jafnvel salati og hvítlauksbrauði.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here