Söngkonan og töffarinn Pink (37) hefur ekki látið sjá sig í sviðsljósinu í marga mánuði núna. Þegar hún lét fyrst sjá sig nýlega varð fólk vart við að hún var mun sverari um sig miðja en vaninn var og lét það fólk hugsa hvort hún væri ófrísk af öðru barni sínu
Sjá einnig: Pink selur risastórt hús sitt á Malibú
Stuttu síðar birti Pink ljósmynd af sér, dóttur sinni og óléttubumbunni á Instagram og staðfesti þar með að hún væri ófrísk.
Fyrir á Pink dótturina Willow Sage Hart með eiginmanni sínum, Carey Hart (41). Samband þeirra hjóna hefur oft staðið á brauðfótum þau 10 ár sem þau hafa verið gift.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.