Hún Lólý er svo mikil gersemi þessi pizza er sko meira en girnileg!
Kíkið á http://loly.is þar er fullt gott að finna.
Uppskrift:
1 skammtur pizzadeig
3 ferskar fíkjur skornar í báta
1 bréf parmaskinka
salt og pipar
Rautt pestó
1 lúka fersk basilika
2 dl ólífuolía
2 hvítlauksrif pressuð
1 poki ferskur mozzarella
Parmesan ostur
Aðferð:
Fletjið pizzadeigið út og setjið rautt pestó á það. Rífið mozzarella
ostinn yfir gróft, setjið fíkjurnar yfir en skiljið eina eftir sem þið
setjið yfir þegar pizzan kemur út ofninum. Dreifið parmaskinkunni yfir,
hluta af basilikunni og saltið og piprið.
Takið ólífuolíuna og blandið hvítlauknum út í hana og dreifið yfir
pizzuna. Bakið við 220°C í 20 mínútur. Þegar pizzan er tilbúin, takið
hana út og dreifið restinni af fíkjunum yfir, fersku basilikunni og smá
óreganó. Svo er auðvitað alltaf gott að rífa ferskan parmesan yfir.