Erum við ekki alltaf að leita að leiðum til að gera matinn hollari?
Þessi botn er tær snilld og kemur frá http://lifandilif.is
Fyrir þá sem elska pizzur en eru ekki hrifnir af því hvað glútein fer illa í þá, þá er þessi pizzabotn tilvalinn. Í honum eru engar kornvörur, hnetur, ger eða egg en bragðast samt sem áður einstaklega vel.
Þessi uppskrift gefur þér ca. 10″ pizzu, fer eftir því hversu þykka þú vilt hafa hana:
1 bolli sólblómafræ (eða kasjúhnetur)
1/2 bolli volgt vatn
2 msk. Whole Psyllium Husk
1 1/2 msk. extra virgin olifu olía
1/4 tsk. sjávarsalt
- Forhitið ofninn við 200 °C.
- Setjið sólblómafræin í matvinnsluvél eða í blandara og myljið þar til þau eru orðin að mjöli.
- Í stóra skál, blandið saman sólblómamjöli, vatni, huski, olíu og salti með höndunum. Deigið mun vera blautt.
- Setjið bökunarpappír á plötu og fletjið deigið út með höndunum. Ef deigið festist á höndunum, skolið þær með köldu vatni og haldið áfram.
- Bakið í 10 mínútur.
- Setjið það álegg sem ykkur hentar á pizzuna og bakið í 15 mínútur til viðbótar.
Kristín fæddist á nunnuspítala og var skírð á flugvelli í henni Ameríku.
Hún er gift og á þrjú börn og eitt barnabarn. Hún hefur að mestum hlut unnið við að efla fólk og hefur menntað sig á því sviði. Ásamt því að skrifa á hun.is vinnur hún sjálfstætt sem meðferðaraðili.
Elskar að lesa, skrifa og mála en útivist og andleg málefni heilla hana.
Hún skrifar út frá eigin reynslu, faglegu nótunum og kaldhæðnislega um upplifun sína af breytingarskeiði miðaldra kvenna. Með hækkandi aldri hefur hún lært að létta sér lífið sem húsmóðir og gera mat á einfaldan hátt en alveg afbragðsgóðan svo frá henni má sjá uppskriftir að ýmsu góðgæti.
Hennar mottó er jákvæðni út í kosmósið því hún hefur lært af lífinu að jákvæðni kemur manni ansi langt!