Prince, heitinn, var með mikið safn af klámmyndum á heimili sínu í Paisley Park, þegar hann lést. Sumar þessara mynda voru með honum sjálfum í aðalhlutverki.
Prince lést fyrir tveimur árum vegna of stórs skammts af lyfinu fentanyl, aðeins 57 ára gamall.
Heimildarmaður RadarOnline sagði:
Prince tók myndbönd af sjálfum sér að stunda kynlíf með mörgu fólki og hann virðist hafa verið frekar „kinky“. Sannanir um þetta voru í hvelfingu sem var á heimilinu og í tölvum sem lögreglan tók þegar hann lést.
Prince hefur verið orðaður við margar konur í gegnum tíðina, en þar má nefna Carmen Electra, Kim Basinger og Sheena Easton.
Ein kona sem svaf hjá Prince, Charlene Friend (46) sagði:
Það var tekið upp þegar ég svaf hjá Prince, án minnar vitundar. Hann lét mig líka horfa á myndbönd af honum stunda kynlíf með öðrum konum.
Hún lýsti einnig „kynlífspartýjum“ með búrum, hlekkjum og svipum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.