Prjónaskapur á sér engin takmörk eins og sést á þessum dásamlegu stólum eftir hina bresku, Claire-Anne O´Brian. Hún heillaðist af prjónamunstrum snemma í hönnunarferlinu sem hún ákvað að gera sýnilegri með því að stækka þau upp. Útkoman eru þessir kollar og stólar, sem minna einna helst á svífandi marglitaða skýjahnoðra.
Heimasíða hönnuðarins er HÉR.
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.