Khloe Kardashian viðurkenndi í spjallþættinum sínum Kocktails with Khloe á miðvikudaginn að hún hafi reynt að eignast barn með Lamar Odom til að bjarga hjónabandinu.
Sjá einnig: Khloe Kardashian: ,,Ég elska klám“
Hin 31 árs gamla raunveruleikastjarna sagði í þættinum hún hafi meira segja gengið svo langt að fara í tæknifrjóvgun. Í dag er Khloe hamingjusöm að það hafi ekki heppnast.
Khloe var 25 ára þegar hún giftist fyrrum körfuboltakappanum Lamar Odom. Hjónabandið entist ekki lengi en stuttu eftir að þau gengu í það heilaga fóru af stað sögusagnir um að Lamar ætti við eiturlyfjavandamál að stríða og væri stöðugt að halda framhjá.
Sjá einnig: Khloe: „Ég er pottþétt fylgjandi lýtaaðgerðum“
Ég vil ennþá eingast fjölskyldu.. en á þessum tíma var ég bara, ég verð að eignast barn. Það var það eina sem ég vildi. Ég trúði því að það myndi mögulega laga ástandið.
Khloe gafst á endanum upp á hjónabandinu þar sem Lamar fór í mikla neyslu. Það tók hana þó mörg ár að komast yfir Lamar.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.