Listi tímaritsins Time yfir 100 áhrifamestu einstaklingana heimsins kom út í síðustu viku. Að því tilefni var slegið upp stórglæsilegri veislu í Lincoln Center í New York í gærkvöldi. Kim Kardashian og Kanye West voru að sjálfsögðu á meðal gesta – enda eru nöfn þeirra beggja á TIME 100 listanum.
Á meðan hjónakornin gengu inn rauða dreglinn og böðuðu sig í athygli ljósmyndara, brá grínistinn Amy Schumer á leik. Lét hún sig detta beint fyrir framan hjónin á meðan þau voru í óða önn að stilla sér upp fyrir myndavélarnar. Svo virðist sem West-hjónin séu húmorslaus með öllu, en þeim var ekki skemmt yfir uppátækinu. Heyra mátti hlátrarsköll allt um kring enda þykir Amy ein sú fyndnasta um þessar mundir.
Sjá einnig: SELFISH: Sjálfsmyndabók Kim selst upp í forsölu á litlum SEXTÍU sexúndum
Sjá einnig: Kanye West tryllist við einkaþjálfara Kim Kardashian – Vill að hann hjálpi Kim að léttast
https://youtu.be/4E2yef0AoJY
https://youtu.be/OCxyeNwd7z8
Sjá einnig: Kim Kardashian og Kanye West eru bara venjuleg eftir allt saman – Sjáðu myndina
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.