Þessi sælkerabomba er fengin af blogginu hennar Erlu Guðmunds. Að sögn Erlu er um að ræða alveg hrikalega góða köku sem slær í gegn í hvaða kaffiboði sem er. Ég hugsa að ég taki Erlu trúanlega og smelli í eina svona strax í dag. Bingókúlur, Rice Krispies, hraun, rjómi – það þarf ekkert meira. Ó, boj.
Sjá einnig: Rice Krispies kubbar með Oreo & hvítu súkkulaði
Rice Krispies terta með bingókúlum & hraunrjóma
Botn
100 gr íslenskt smjör
100 gr suðusúkkulaði
3 msk sýróp
300 gr bingókúlur (150 gr í botninn og 150 gr brædd ofan á)
3-400 gr Rice Krispies
- Hendið öllu í pott og bræðið við vægan hita. Ég setti 150 grömm af bingókúlum með smjörinu, súkkulaðinu, sýrópinu og Rice Krispies-inu. Hin 150 grömmin bræddi ég sér í potti með smá rjómaslettu út í og skellti síðan yfir botninn þegar hann hafði verið inn í ísskáp í ca. klukkustund.
Ofan á
250 ml rjómi
2 stykki risahraun frá Góu
250 gr jarðarber
- Þeytið rjómann og saxið hraunsúkkulaðið, frekar gróft.
- Bætið hrauninu saman við rjómann þegar búið er að þeyta hann.
- Skellið ofan á botninn og skreytið síðan með jarðarberjum.
Verði ykkur að góðu og gleðilega helgi.
Sjá einnig: Sjúklega gómsæt ostakaka með Mars & Rice Krispies
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.