
Söngkonan Rihanna fer alla leið í nýjasta myndbandinu sínu við lagið Pour it up.
Myndbandið er lýsandi fyrir lag sem byrjar á “Strip clubs and dollar bills”.
Ekkert er skilið eftir fyrir ímyndunaraflið, Rihanna og dansarar eru næstum naktar og sveifla sér á súlum og nudda sér utan í allt sem að þær koma nálægt. Þetta er myndband sem að þú spilar ekki í vinnunni!
Línan milli tónlistarmyndbanda og klámmynda heldur áfram að vera örþunn.
[youtube width=”600″ height=”325″ video_id=”ehcVomMexkY”]
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.