Rob Kardashian (28) hefur náð ótrúlegum árangri í ræktinni að undanförnu og hefur lést gríðarlega. Blac Chyna (27) er rosalega ánægð með árangur kærastans síns en Blac vill taka þetta skrefinu lengra. Samkvæmt Life&Style er Rob á leiðinni undir hnífinn að beiðni Blac Chyna. Hún vill hafa sinn mann stinnan og eftir að Rob léttist er hann með mikið af lausu skinni sem þarf að skera í burtu.
Sjá einnig:Er Blac Chyna ófrísk?
Það hefur ekki slitnað slefið á milli þeirra skötuhjúa upp á síðkastið og ástin virðist blómstra sem aldrei fyrr. Hvort sem þetta með svuntuaðgerðina er satt eða ekki þá er áreiðanlegt að þau eru nokkuð ánægð með hvort annað að flestu leyti.
Sjá einnig: Birti mynd af Rob Kardashian berum að ofan
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.