Robert Kardashian hefur aldeilis breytt um lífstíl eftir að hann byrjaði með Blac Chyna. Hann er farinn að láta sjá sig utandyra, byrjaður í ræktinni og borða heilsusamlegan mat og segir hann það vera vegna sambands síns við Blac. Hann fór meðal annars með henni og syni hennar King Cairo(3) í smá fjallgöngu og borðar hollan og góðan mat sem Blac eldar fyrir hann.
Sjá einnig: Rob keyrði í 19 tíma til að sækja Blac Chyna
Enn eru mikil ósætti og læti í fjölskyldunni þar sem Blac er barnsmóðir Tyga, sem er kærasti Kylie Jenner og gerir það fjölskyldutengslin ívið flókin.
Þrátt fyrir að náðst hafi til Rob móðum og másandi í göngutúr, þá er hann þó að sýna þess merki að hann sé að reyna að snúa við blaðinu og verða heilbrigðari.
Sjá einnig: Rob Kardashian er byrjaður með barnsmóður Tyga
Sjá einnig: Kærasta Rob Kardashian var handtekin á föstudaginn
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.