Robert Kardashian og Blac Chyna eru á fullu við að undirbúa komu erfingja síns en eru ekki komin á þann stað í sambandinu að þau geti búið saman. Þau búa í sitthvoru húsinu og hafa plön um að ala barnið upp saman, en Rob er ekki tilbúinn til að selja hús sitt enn sem komið er.
Sjá einnig: Rob birti símanúmer litlu systur sinnar á Twitter
Flestir sem fylgjast með Kardashian fjölskyldunni vita að samband þeirra hefur verið afar stormasamt frá byrjun. Rob hefur ítrekað ásakað Blac um að vera í of miklum samskiptum við aðra menn og hefur sýnt vanþóknun sína á dramatískan máta. Hann hefur látið sig hverfa og komið í veg fyrir að hún geti hringi í hann, en hefur undanfarið reynt að vinna í sínum málum.
Þegar barnið kemur í heiminn munu þau eiga aðsetur á heimili Blac, en Rob hefur verið þar síðustu vikurnar þrátt fyrir mikið ósætti þeirra á milli.
Spurning er hvar þetta samband þeirra muni enda?
Sjá einnig: Blac Chyna með auka farsíma sem Rob vissi ekki um
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.