Þær ykkar sem eru hrifnar af fötum frá Urban Outfitters ættuð endilega að gera ykkur ferð í Brandy & Melville ef þið eigið leið til útlanda. Á ferð minni um Barcelona á dögunum var ég dregin inn í eina slíka af unglingnum mínum og fílaði mig bara nokkuð vel þegar sú stutta hafði rokkað mömmu sína upp.
Verslanir Brandy & Melville hafa vaxið hratt á síðustu árum og má finna þær víða í Bandaríkjunum og Evrópu og nýlega opnaði ein í Stokkhólmi.
Stíllinn er frekar frjálslegur og hrár. Ég myndi segja að fílingurinn væri rokkaralega hippalegur en þó er hægt að finna inn á milli flottar klassískar flíkur. Innan um “vintage” útlit verslunarinnar mátti líka finna aukahluti eins og töskur, skartgripi, orkusteina, iPhone hulstur ofl.
Á heimasíðu verslunarinnar segir að nafnið Brandy & Melville sé tilkomið vegna tveggja einstaklinga, hinnar amerísku Brandy og þeim enska Melville, þau hittust í Róm og urðu ástfangin………..rómó.
Hér er hægt að kynna sér betur vörur Brandy&Melville og hvar verslanirnar eru staðsettar.
Heimilsfangið í Barcelona er Psseig de Gracia 21.
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.