Madison Square Garden var stútfullur af hundruðum módela og frægu fólki þegar Kanye West sýndi nýjustu fatalínu sína sem ber nafnið Yeezy 3.
Sjá einnig: Fékk yfir 150 jólagjafir frá Kanye West
Kanye fær gríðarlega mikil athygli fyrir það eitt að vera mest áberandi nýliðinn í tískubransanum, enda ekki furða ef miðað er við umfang alls þess sem hann tekur sér fyrir hendur. Kim er þó hans allra stærsti aðdáandi og vakti hún mikila athygli þar sem hún var með hárið ný litað platínuljóst og var í hvítum feldi. Einnig voru Kris Jenner, Khloe, Kourtney, Kendall, Kylie, North og Caitlyn allar klæddar í hvítt úr fatalínu Kanye og skáru þær mæðgur sig allar verulega úr hópi áhorfenda.
Sjá einnig: Khloe og Lamar sjást saman í fyrsta sinn eftir atvikið í október
Í sátt og samlyndi: Fyrrum hjónakornin Caitlyn og Kris Jenner stilltu sér upp fyrir myndavélina.
Sjá einnig: Kim Kardashian nánast óþekkjanleg á tískusýningu eiginmannsins
Kanye notaði tækifærið og sýndi látinni móður sinni og tengdaföður virðingu með því að klæðast bol með áprentuðum myndum af þeim.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.