Það hafa verið uppi sögur um það að Ryan Gosling og Eva Mendes séu skilin og svo virðist sem sambandið standi á brauðfótum þessa dagana. Eva Mendes er að sögn heimildarmanna mjög afbrýðisöm og sagði þessi heimildarmaður að hún hafi séð sms frá ókunnugu númeri í síma Ryan og það hafi valdið afbrýðisemi hjá skvísunni.
Þau hættu saman fyrir um 6 mánuðum síðan en tóku saman aftur en síðan þá hefur lítið breyst.
„Það er greinilegt að eitthvað er að og það kæmi ekki á óvart ef þau hættu saman fyrir fullt og allt núna,“ segir þessi heimildarmaður.