Leikarinn Ryan Reynolds var gestur í spjallþættinum Good Morning Britain í vikunni. Í þættinum ræddi Ryan meðal annars um föðurhlutverkið og af hverju dóttir hans fékk nafnið James.
Sjá einnig: Er hjónaband Blake Lively og Ryan Reynolds í molum?
Ryan var spurður að því hvort að James væri ekki strákanafn og Ryan svaraði því að hann og eiginkona hans, Blake Lively, litu ekki þannig á það.
Við skírðum hana í höfuðið á föður mínum.
Faðir Ryan, James C. Reynolds, lést í október síðastliðnum eftir 20 ára baráttu við Parkisons-veiki.
Ryan ræddi einnig um ást sína á föðurhlutverkinu:
Ég einfaldlega elska að vera pabbi, James er einmitt að taka tennur núna. Ég nenni samt ekki að vera einn af þeim sem talar um foreldrahlutverkið eins og ég sé sá eini í heiminum sem hefur upplifað það.
Ryan ásamt foreldrum sínum árið 2005.
Ryan, Blake og James litla.