Þessi dásamlegi og einfaldi saltfiskréttur kemur frá Albert Eldar. Hægt er að nota annan fisk en saltfisk í réttinn, ásamt því að þú getur útbúið þitt eigið mango chutney ef þú kýst sykurminni útgáfu af réttnum.
Saltfiskur með mangó chutney
800 g saltfiskur (hnakkastykki)
1 krukka af mango chutney (rúmlega einn bolli)
5 msk rjómaostur
rifinn ostur
Skerið fiskinn í bita og raðið í eldfast form. Setjið mangó chutney í pott og hitið lítið eitt, látið rjómaostinn saman við og hrærið í þangað til hann er uppleystur. Hellið yfir fiskinn, stráið rifna ostinum yfir og bakið í um 20 mín við 175°.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.