Saman gegn matarsóun (United Against Food Waste Nordic) er norræn samvinna sem vinnur að því að minnka sóun á mat bæði í framleiðsluferlinu og hjá almenningi.
Markmiðið er að vekja athygli á þessu vandræðalega vandamáli ásamt því að leita lausna en gífurleg misskipting veldur því að sumir lifa í vellystingum og henda mat í tonnavís á meðan hungursneyð ríkir annarsstaðar.
Á heimsíðu verkefnisins er tekið fram að það sé hugsað til eins árs í senn. Auk viðburðarins í Hörpu sem fer fram þann 6. september á milli kl 13.00-18.00 verður framleidd heimildarmynd um matarsóun, gefin út matreiðslubók, framleiddur sjónvarpsþáttur, haldin námskeið fyrir almenning og stór málstofa verður skipulögð með aðkomu fagfólks svo fátt eitt sé nefnt.
Dagskráin í Hörpu verður í formi örfyrirlestra á sviðinu í Silfurbergi, básar frá fyrirtækjum verða með kynningar ásamt góðgerðarsamtökum og frumkvöðlum sem kynna munu árangursríkar aðferðir til að koma í veg fyrir sóun matvæla. Sem dæmi má nefna bjóða grænmetisbændur upp á súpu úr grænmeti sem fær ekki að fara í verslanir sakir afbrigðilegs útlits.
Mikið og þarft málefni hér á ferð því betur má ef duga skal.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér málefnið betur er bent á vef verkefnisins matarsoun.is. Dagskrána er aftur á móti að finna hér fyrir neðan.
Dagskrá:
• Guðfinnur Sigurvinsson verður kynnir hátíðarinnar
• Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur opnar hátíðina
• Selina Juul, dönsk baráttukona gegn matarsóun sem er handhafi Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs og forsprakki samtakanna Stöðvum sóun matvæla (Stop spild af mad) í Danmörku og hefur vakið mikla athygli fyrir skelegga frammistöðu sína í þágu málefnisins
• Tristram Stuart er mikilsmetinn fyrirlesari um matarsóun og hefur hlotið alþjóðleg verðlaun fyrir baráttuna gegn matarsóun, Sophie Prize, árið 2011
• Heiðarskóli. Kynning á grunnskólanemaverkefni um matarsóun
… og fleira
Kynningar og skemmtiatriði:
• Uppskeran heilsumarkaður
• Velbú- velferð í búskap
• Íslenskir grænmetisbændur
• Ankra – snyrtivörur úr auðlindum hafsins
• Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna (UNRIC).
• Kvenfélagasamband Íslands og Dóra Svavarsdóttir frá Culina kynna námskeið um matarafganga
• Landvernd
• VAKANDI
• Náttúran.is
• Samhjálp
• Tímaritið „Í boði náttúrunnar“
• DJ Sóley sér um tónlistina
• Þórunn Clausen les upp úr Smjattpöttunum
… og fleira
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.