Silja Rós Ragnarsdóttir er 21 árs og hefur verið að semja tónlist frá því hún var 14 ára. Hún er búin með 6. stig í söng í Söngskóla Reykjavíkur og er sjálflærð á gítar og píanó.
Nýlega samdi Silja þetta lag eftir að gömul vinkona hennar, Kara, lést vegna fíkniefnaneyslu og er þessi flutningur á Rósenberg. Gítarleikarinn heitir Grétar Örn Axelsson og Rebekka Sif er í bakröddum.
„Kara gerði svo margt fyrir mig þegar við vorum vinkonur frá því við vorum svona 6 ára til svona 12-13 ára aldurs. Frábær vinkona og í laginu er ég að þakka henni fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og ég vildi að ég hefði getað hjálpað henni meira á síðustu árum.“
[facebook_embedded_post href=”https://www.facebook.com/video.php?v=10152443695294290″]
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.