Breski ljósmyndarinn hún Sandi Ford tekur dásamlegar ungbarnamyndir sem fær hjartað til að bráðna á núll einni. Hún hefur sett saman seríu af sofandi ungabörnum sem er það krúttlegasta sem þú sérð í dag.
Þessi sería nefnist „Welcome to the World“ þar sem hún sýnir ungabörn sofandi með höfuðið ofan á höndum sínum.
Sandi er búsett í Ealing í vestur London og segir sjálf að hún sé í mikilvægasta starfi sem hægt er að hugsa sér.
Hún snéri sér alfarið að fjölskylduljósmyndun árið 2010 og hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir þær.
Hún setur börnin í þessar fallegu stellingar og nær þessum dásamlegu myndum af þeim.
Hún tekur það fram í viðtali að það er auðvita öryggisatriðið sem hún fer í gegnum á meðan myndatöku stendur og foreldrar hjálpar til.
Börnin á þessum myndum er á milli 7 til 21. daga gömull.
Sandi vonast til að myndirnar verði dregnar fram á brúðkaupsdegi hjá þessum börnum og verði einnig fallegt listaverk upp á vegg hjá þeim þegar þau verða fullorðin.
Hún kallar þessa stellingu „froskin“ og eru börnin steinsofandi á meðan það er verið að mynda þau.
Hér getur þú fundið fleiri verk frá Sandi Ford, heimasiðan hennar hér og facebook síðan hér