Sandkaka
Þessi kaka þykir fara einkar vel með heitu súkkulaði. Hana má baka í venulegu formkökuformi eða í múffuformum og heitir sú útgáfa prinsessukökur! Bakist við 180⁰C
250 gr. smjörlíki
250 gr. sykur
4 egg
125 gr. maísannamjöl (eða kartöflumjöl)
(ef vill má bæta 25 gr. af rifnum möndlum og 25 gr. af rifnu suðusúkkulaði út í deigið.)
Hrærið smjörlíki, egg og sykur mjög vel saman. Bætið mjöli (og möndlum og súkkulaði, ef vill) út í.
Verði ykkur að góðu!