Hin 25 ára gamla Sara Heimisdóttir ætlar að ganga að eiga vaxtarræktarmanninn Rich Piana eftir tvær vikur á Mr. Olympia keppninni.
Keppnin verður haldin í Las Vegas en samkvæmt Youtube myndbandi frá Rich Piana, 44 ára, verður þetta tvöfalt brúðkaup þar sem vinapar þeirra ætlar einnig að ganga í það heilaga á sama tíma.
Þau Sara og Rich eru iðin við að æfa saman ef marka má Instagram myndir þeirra en það er 18 aldursmunur á þeim.
Sara Heimis hefur verið búsett í Bandaríkjunum í fimm ár en hún hefur gert það gott sem Fitness fyrirsæta þar í landi.
Sjá einnig: Sara Heimisdóttir hefur náð langt í vaxtarrækt í Bandaríkjunum.
Hér má sjá parið í ræktinni að taka æfingu saman
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.