Hugmyndin spratt út frá tekatlinum hennar ömmu minnar, greinir Rachel Boxnboim frá á heimasíðu sinni um þetta dásamlega tesett sem hún hannaði. Hún byrjaði á að mæla teketilinn út, bjó til snið af honum ásamt sniði af bollum, mjólkurkönnu og teskeiðum og saumaði saman. Að lokum notaði hún efnin eins og mót og hellti postulínsmassa ofan í þau. Eftir að hafa farið upp í 1000 C hita í leirbrennsluofni brann efnið í burtu og þunnt lag af postulíni sat eftir.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér þetta vinnsluferli nánar er hægt að horfa á myndband hér fyrir neðan.
Eins og sjá má eru mótin saumuð saman úr ýmisskonar efnum.
Hér er myndbandið af vinnsluferlinu
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.