Í síðustu viku náðust myndir af nokkrum kynþokkafullum stúlkum mæta heim til raunveruleikastjörnunnar, Scott Disick, á heimili hans í Hollywood Hills.
Flestir sem fylgjast með Kardashian fjölskyldunni vita að nú nýlega henti fyrrverandi kærasta Scott og barnsmóðir hans honum út af heimilinu eftir að myndir náðust af honum í innilegum faðmlögum með fyrrverandi kærustunni sinni.
Sjá einnig: Scott Disick: Djammar með ólögráða unglingsstúlkum
Svo virðist sem Scott hafi ekki lagt frá sér vínflöskuna eftir að honum var hent út af heimilinu.
Samkvæmt heimildamanni mættu þessar kynþokkafullur stúlkur þó ekki á heimili hans til að drekka með honum heldur var verið að taka upp tónlistarmyndband, í húsinu hans sem þær léku í. Scott bauð framleiðandanum að nota heimili sitt þar sem það er svo glæsilegt útsýni.
Sjá einnig: Scott Disick: Óttast að hjákonan sé ófrísk
Það vakti þó miklar grunsemdir þegar ein stúlkan kom út í baðslopp en heimildamaður þvertekur fyrir það og sagði að það væri einnig partur af tónlistarmyndbandinu.
Sjá einnig: Kourtney Kardashian: Svo stressuð að hún er farin að grána
Sjá einnig: Fór í meðferð í nokkra tíma en hætti síðan við
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.