Bróðir Mariah Carey talar ekki vel um hana þessa dagana. Systir þeirra, Morgan, er alvarlega veik og hefur beðið Mariah og fjölskylduna um hjálp í veikindunnum. Mariah hefur hundsað beiðni systur sinnar og kallar bróðir hennar hana illa norn fyrir að neita að borga sjúkrareikning Morgan.
Sjá einnig: Mariah Carey skartar gylltum sundbol
Morgan er 51 árs gömul og er að berjast við HIV veiruna. Hún þarfnast heila- og mænuaðgerðar, sem er afar kostnaðarsöm, en Mariah virðir þau ekki viðlits. Á árum áður snéri Morgan sér að vændi til að sjá fyrir börnum sínum og hefur síðan þá lifað lífi sem Mariah hefur líkað mjög illa við. Fyrir um ári síðan lést Morgan næstum úr veikindum sínum, en bróðir hennar skammast út í söngdívuna og sagði hana borga meira í hundamat en það sem þyrfti til að bjarga lífi systir þeirra.
Sjá einnig: „Við getum ekki gift okkur strax“ – Mariah og James enn gift
Bróðir hennar bætir við að Mariah eigi sjálf við drykkjuvandamál að stríða og taki mikið magn lyfseðilsskyldra lyfja, svo hún hafi ekki efni á því að gera lítið úr veikindum systur sinnar.
Sjá einnig: DRAUMADEIT: Mariah Carey sönglar kæruleysislega eigin lög í framsætinu
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.