Segist ekki vera að byrjuð með Johnny Depp

Hin 29 ára gamla rússneska fyrirsæta, Yulia Vlasova, kastaði sprengju inn á Instagram um helgina, þegar hún setti minn mynd af sér og Johnny Depp. Á myndinni má sjá Johnny halda utan um Yulia og við myndina stendur. „Don’t believe everything you hear on the internet. My dear friend“ eða eins og það myndi þýðast „Ekki trúa öllu sem þið heyrið á internetinu. Kæri vinur minn.“ 

Samkvæmt heimildarmanni People eru Johnny og Yulia að hittast annað slagið og eru ekkert að drífa sig að setja eitthvað formlegt í loftið. „Þau eru ekki farin að kalla sig par enn sem komið er.“

SHARE