Joe Simpson, faðir Jessicu Simpson er mjög pirraður þessa dagana á þeim sögusögnum sem ganga um að hann sé samkynhneigður. Hann segir þetta vera algjöran þvætting.
Það hafa verið fréttir í slúðurblöðum úti um það að hann sé kominn útúr skápnum og sé búinn að tilkynna fjölskyldunni sinni það og ástæða skilnaðar hans og konu hans hafi verið vegna samkynhneigðar Joe.
Önnur frétt kom um daginn þar sem talað var um hversu miklu sjokki Jessica og systir hennar Ashley væru yfir þessum fréttum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.