Selena Gomez getur ekki gengið með börn

Selena Gomez (32) segir frá því í mjög opinskáu viðtali hjá Vanity Fair að hún geti ekki gengið með sín eigin börn.

 

„Ég er því miður með of marga sjúkdóma til að geta gengið með börn, mér og barninu að skaðlausu. Það er eitthvað sem ég hef verið að syrgja lengi.“

Selena var greind með rauða úlfa árið 2013 og þurfti að fá nýrnaígræðslu árið 2017. „Ég hafði aldrei gert mér í hugarlund að líf mitt yrði svona. Ég hélt alltaf að ég myndi eignast börn eins og allir aðrir,“ segir Selena í viðtalinu. Hún segir jafnframt að hún hafi sætt sig við þetta og viti að það sé fullt af konum þarna úti sem séu tilbúnar að vera staðgöngumæður og hún geti líka ættleitt, og það séu valkostir sem hún muni nýta sér.

 

Selena hefur verið með Benny Blanco (36) síðan í júlí 2023, en hann sagði nýlega í viðtali hjá Howard Stern að hann myndi vilja eignast börn í framtíðinni.

 

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here