*Mér finnst ég vera sérstakur þegar stöðumælavörðurinn velur mig til að gefa miðann sinn.
*Ég elska þegar þú tekur dramaköst, þú ert svo skemmtileg/ur þannig
*Ég elska þegar afgreiðslumaðurinn á KFC kemur mér á óvart með því að sleppa einhverju af því sem ég pantaði & borgaði.
*Mér finnst alveg sanngjarnt að borga FIT kostnað.
*Er 2 unlimited líka uppáhalds bandið þitt?
*Nei takk.. ekki leggja meira inn á mig, bankareikningurinn minn er fullur.
*Ég vildi að ég væri lengur á túr..
*Ég hefði aldrei getað þetta ef það væri ekki fyrir alla algebruna sem ég þurfti að læra..
*Endilega haltu áfram að segja mér hvernig klósettmálum barnsins þíns er háttað
*Oh ég elska þegar ég lendi fyrir aftan gamalt fólk í umferðinni
*Vá hvað þetta er falleg duckface pósa
*Við kærustuna “ástin mín, getur þú stokkið út og gert við bílinn”
*við kærastann “æj getur þú ekki verið lengur í FIFA?”
*Já ég er nú bara ánægður með þessar skattahækkanir
*Internetið er bara bóla sem mun springa
*Ég elska þegar kærastan mín er á blæðingum
…Ekki haft eftir neinum, nokkurntímann!