Sharon Stone(57) var vægast sagt stórglæsileg á Critics Choice Awards. Hún steig á svið til þess að kynna sigurvegara fyrir bestu kvikmyndina og stal hún um leið algjörlega sviðsljósinu.
Sjá einnig: Sharon Stone (57) situr fyrir nakin í Harper’s Baazar
Sharon hefur ekki verið áberandi að undanförnu er varðar leiklistina, en hún veiktist skyndilega fyrir nokkrum árum vegna heilablóðfalls og hefur hún unnið hörðum höndum að bata sínum síðan þá. Hún segir að sú vinna sem hún hafi lagt á sjálfa sig til þess að ná bata hafi haft það í för með sér að hún sé nú mun beinskeyttari í samskiptum við annað fólk. Sharon ber þá gjarnan fyrir sig að hún geti ekkert að því gert, þar sem hún hafi orðið fyrir heilaskaða.
Sjá einnig: Hefur Sharon Stone fundið æskubrunninn? – Myndir
Sjá einnig: Versta hárið á Óskarsverðlaununum – Myndir
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.