Þetta er síðasta manneskjan sem fædd er á 19. öldinni. Emma Morano kemur frá Vercelli á Ítalíu og er hvorki meira né minna en 117 ára gömul.
Emma fæddist 29. nóvember árið 1899. Bretland var enn í stríði við Boers í Suður Afríku. 15 ár voru í fyrri heimsstyrjöldina og hún var 28 ára þegar sjónvarpið var fundið upp.
Sjá einnig: 87 ára gömul og algjör uppreisnarseggur
Hún er skráð í heimsmet Guiness fyrir að vera eina eftirlifandi manneskjan frá 19. öldinni, en hvað er hennar leyndarmál fyrir langlífinu? Hún segir ástæðuna vera að hún borði tvö egg á dag og hefur gert það frá því hún 20 ára gömul og því gert það í 97 ár. Hún nýtur þess einnig að borða smákökur, en segir þó að hún geri ekki mikið af því, þar sem hún er tannlaus.
Sjá einnig: 103 ára gömul ofurkona
Heimildir: Bored Panda
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.