Sífellt vinsælla að nota 100% hreinar snyrtivörur


Það eru ekki mörg snyrtivörumerki sem geta stært sig af því að ná 100% hreinleika. Nokkuð mörg ná 80-95% í mesta lagi en auglýsa sig samt sem hrein, en það er mjög sjalgæft að ná 100%.
Novexpert, sem kom á markað árið 2008, er frönsk húðvörulína sem þróuð er af læknum og sérfræðingum í öldrun húðarinnar. Mörgum árum áður fóru þessir aðilar af stað með það að leiðarljósi að framleiða aðeins 100% hreina húðvörulínu. Ástæðan fyrir því var djúp vitneskja þeirra á því hvað efni, tengd snyrtivörum, geta haft óæskileg áhrif á líkamann. En allt sem við berum á húðina frásogast að einhverju leyti inn í blóðrásina og hefur áhrif. Niðurstaðan varð svo Novexpert sem er 100% hrein og náttúruleg og er á sama tíma mjög virk og vinnur gegn öldrun.

Engin kemísk efni


Snyrtivöruframleiðendur hafa búið að þeirri vitneskju lengi, að kemísk efni (tilbúin efni unnin á rannsóknarstofum), geta haft óæskileg áhrif bæði á húð og líkamsstarfsemi. En það er dýrt að breyta og hrein efni eru oftar en ekki dýrari en þau efnaunnu. Það má því með sanni segja að Novexpert hefur stórt samkeppnisforskot að þessu leyti. Mikil vitundavakning hefur verið undanfarið hjá hinum almenna neytenda um mikilvægi þess nota hreinar vörur á húðina. Ef við veljum frekar hreinar snyrtivörur forðumst við hugsanlegan heilsufarslegan skaða, en til dæmis hafa sumar rannsóknir á ákveðnum kemískum efnum sem notaðar eru í „hefðbundnum“ snyrtivörum verið tengdar við hormónatruflanir í fólki.

Fyrir barnshafandi konur og konur með barn á brjósti


Novexpert notar sem sagt bara 100% náttúruleg innihaldsefni sem hafa nærandi og græðandi eiginleika sem bæta heilsu húðar og líkama. Húðin verður náttúrulega fersk og ungleg en öll lykilinnihaldsefnin eru efni sem eru nú þegar til staðar í líkamanum, sem hann þekkir og tekur vel á móti. Það eru engar tilbúnar ilmkjarnaolíur í Novexpert og þess vegna eru þær betri kostur fyrir þá sem eru með viðkvæma húð eða hafa tilhneigingu til að fá ofnæmisviðbrögð eða ertast auðveldlega. Vörurnar er í 100% lagi fyrir barnshafandi konur og konur með barn á brjósti, en mjög fá snyrtivörumerki geta stært sig af því að vera öruggar fyrir alla.


Mikil áhersla er á sjálfbærni og umhverfisvernd. Þau nota lífræn, siðferðilega ræktuð og endurnýtanleg innihaldsefni og pakka vörunum sínum í endurvinnanlegar umbúðir. Þau eru á móti dýratilraunum og eru 100% vegan.

Veldu hreint, veldu vel, veldu Novexpet.
Novexpert er nýkomið til Íslands og fæst núna í Lyfjavali, Lyfjaveri, Efstaleitisapóteki, ÍslandsApóteki og Fræinu Fjarðakaup.

SHARE