Sigríður Klingenberg er einhver litríkasta spákona okkar íslendinga og lífskúnstner með meiru. Sigga Kling, eins og við köllum hana flest, hefur fóðrað landann á stjörnuspám sem hafa vakið gríðarlega athygli og skapast heilmikil eftirvænting bakvið tölvuskjái um land allt þegar líða fer að spádómsdegi. Spádóma Siggu má nálgast á lífstílsvefnum tiska.is og koma nýjir og ferskir spádómar á þriggja vikna fresti. Áhuginn er slíkur að menn og konur eru farnar að iða í skinninu þegar fer að líða að þriðju og síðustu vikunni. Samfélagsmiðlarnir hafa iðullega logað úr eftirspurn á lokametrunum.
Áhuginn á spádómunum hefur verið slíkur að Sigga hefur nú í samvinnu við Góu sett á markað svokölluð Spádómsegg. Þannig mun Sigga svala spáþyrstum yfir páskahátíðina og vert er að brýna fyrir fólki að spádómsbók er í botni kassans, honum skal því alls ekki henda.
Það er óhætt að segja að Sigga sé í sannkölluðum söluham um þessar mundir og lætur bókstaflega ekkert stoppa sig. Ekki einu sinni heimsendi ef því er að skipta. Voruði búin að sjá hana í gírnum?
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.