Svo virðist sem engu máli skiptir í hvaða stíl hinn 52 ára gamli Brad Pitt setur sig í, því hann gerir aðdáendur sína alltaf bandbrjálaða í sig. Nú hefur hann litað hár sitt silfurgrátt fyrir hlutverk sitt í nýjustu kvikmynd sinni sem ber nafnið War Machine.
Sjá einnig: Sjáðu hvað börn Angelinu Jolie og Brad Pitt eru orðin stór
Brad er í þrusu formi en aðeins bar á átökunum í andliti kappans og þurfti hann ítrekað að lagfæra stuttbuxur sínar á meðan á upptökunum stóð. Hann hefur aldeilis sýnt það og sannað að hann er sannkallað kamelljón og skiptir litlu hvaða útlit hann tekur sér fyrir, því hann er nær alltaf að bræða kvennahjörtu um allan heim.
Skokkandi um í París: Brad er flottur í nýjasta hlutverki sínu fyrir kvikmyndina War Machine.
Sjá einnig: Sýpur Brad Pitt úr æskubrunninum?
Stuttbuxurnar eitthvað að stríða? Brad þurfti ítrekað að lagfæra sig á hlaupunum, en hann stóð sig eins og hetja.
Sjá einnig: Brad Pitt kýs trúleysi
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.