Hinn grjótharði Simon Cowell sýndi heldur betur á sér mjúku hliðina um liðna helgi. En Cowell birti ægilega sæta mynd af sér og Eric, syni sínum, á Twitter. Á myndinni liggja þeir feðgar saman í mestu makindum og horfa á The Lion King.
Sjá einnig: Simon Cowell fór með 10 daga gamlan son sinn á sólarströnd – Myndir
Simon lét eftirfarandi texta fylgja myndinni:
After watching the Jungle Book 1000 times we have moved on to the Lion King.
Ég væri alveg til í að vera Eric litli. Liggjandi þarna á bringunni á Simon. Mmm.
Sjá einnig: Simon Cowell ber að ofan með kærustunni á ströndinni
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.