Þessar eru æðislega góðar og sumarlegar!
24 litlar múffur
Efni:
Í múffurnar:
- 1-1/2 bolli hveiti
- 1-1/4 tesk. lyftiduft
- 3/4 bolli sykur
- 6 matsk. lint smjör (eða smjörlíki)
- 2 egg
- 1-1/2 matsk. vanilludropar
- 1/2 bolli undanrenna
- 2 matsk. sítrónusafi
- Rifinn börkur af 2 sítrónum (ATH! þarf að nota gróft rifjárn)
- Örlítið salt
Í fyllinguna (kremið):
- 175 gr lint smjör
- 2-1/2 bolli flórsykur
- 2 tesk. vanilludropar
- 1/4 bolli smátt skorin, ný jarðarber
- 1 til 2 matsk. sítrónusafi
- Rifinn sítrónubörkur (til skrauts)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180˚ C . Berið smjör eða bökurnar sprey innan í múffuform eða notið pappírsform innan í múffuformin.
- Hrærið smjör, sykur og egg vel saman. Bætið vanilludropum, sítrónusafa og rifna berkinum út í, blandið vel.
- Blandið saman í annarri skál hveiti, lyftidufti og salti. Setjið þurrefnin og mjólkina saman við eggjahræruna. Blandið vel saman. Setjið nú deigið með skeið í múffuformin og bakið í 15-22 mín. Takið kökurnar þá úr formunum og látið kólna.
- Útbúið fyllinguna meðan múffurnar eru að bakast. Þeytið saman smjör, jarðarber, vanilludropa og flórsykur. Bætið sítrónusafanum út í. ( láttu smekkinn ráða hve mikið er notað af sítrónusafa)
- Setjið nú kremið ofan á múffurnar (sjá mynd!), skreytið með rifnum sítrónuberki og skreytið með bleiku strái (ef vill)
Verði ykkur að góðu |