Þetta virðist ætla að verða litríkt ár í hártískunni, eins og seinustu ár. Nú er komið nýtt æði sem er sjálflýsandi hár og eru margir farnir að birta myndir af sér á Instagram með þessa nýju tísku og eru myndirnar merktar#glowinthedarkhair
Margir sem eru með sjálflýsandi hár eru að nota lit sem heitir Manic Panic’s High Voltage Classic Cream Formula Hair Color.
Sjá einnig: DIY: 3 einfaldar og fljótlegar hárgreiðslur
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.